Thursday, November 16, 2006

It´s cold inside

Yepp, það er skítakuldi heima. Ofnarnir heim eru víst orðnir ansi gamlir, kannski svona 30 ára eða svo.. Örugglega stútfullir að kísil og enginn hiti kemst í þá.
En pípar mættu loksins eftir að hafa lofað komu sína fyrir svona mánuði eða svo. Þeir tóku sig til og fixuðu klósettið, gerðu við ofn sem lak í eldhúsinu. En gátu ekki lagað stæðsta ofninn í stofunni uppi, né niðri í minni íbúð.
Núna er um 16-17 stiga hiti heima hjá gömlu hjónunum uppi og ég lánaði þeim litla rafknúna ofninn minn til að halda á þeim hita. Það er aðeins meiri hiti niðri í minni íbúð. Það þarf örugglega að kaupa nýja ofna.

Fjandans píparar. Alltaf að bíða eftir þessum gaukum. Ég held að við ættum að hætta að hvetja fólk að fara í háskólann og hvetja það bara að fara í píparanám í staðinn. Það vantar meira af fólki beygjandi sig niður undir vaska og ofan í klósett flassandi loðinni rassboru til okkur allra.
Við munum þakka þeim fyrir það.
Trust me on this.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home