Wednesday, September 20, 2006

The ungodly hour

Jæja, mér tókst að vakna um 7 leitið í morgun... ja varla tókst... ég vaknaði bara. Ég vakna venjulega um svona 8 leitið, snooza í um 30 til 40 mín og fer svo á fætur. Mæti í vinnuna um 9 leitið. Sweet life.
En af einhverri ástæðu er ég farinn að vakna um 7 leitið núna. Sem er allt í lagi... ég vellti mér bara venjulega á hina hliðina og held áfram að sofa.
En í morgun. þá fór ég á fætur.. vissi ekki alveg hvað ég ætti að gera af mér, þannig að ég settist fyrir fram imbakassann og fór að leika mér í xbox360..
Held nú að gæti nú gert eitthvað betra, kannski stundað líkamsrækt á morgnana, verið fullur af orku í vinnunni, samstarfsmanna minna til mikillar gleði og fólk mun finna sundurrifið lík mitt í ruslatunnu..

Já, svo djöfull mikil umferð á morgnana, ég var á um 40 km niður alla ártúnholtsbrekkuna. Ég lifði það alveg af, en það var bara eitthvað svo fyndið.. Ég held að Íslendingar eiga of stóran bílaflota.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home