Saturday, February 18, 2006

Hann var ótrúlegur...

Hann var ótrúlegur, það skipti ekki máli frá hvaða sjónarhorni á hann var horft, lögun hans var fullkomin. Hann lá í vatninu eins og öflugasta orustuskip sem hefur sést í manna minni. Aldrei í sögu mannkynsins hefur eitthvað jafn stórkostlegt verið skapað.
Áferð hans var rennislétt og liturinn guðdómlegur. Liturinn minnti á haustið, þegar laufblöðin byrja að falla og veröldin grípur þétt um sig stappar niður fótunum.
Hann var mín eigin sköpun. Mitt eigið litla barn. Ég gaf honum líf. Ég gaf honum sál. Ég bar hann innra með mér lengi.
Slæmt að ég þurfti að sturta honum niður.

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Samdirðu þetta sjálfur pervertinn þinn? :D

9:35 PM  
Anonymous Anonymous said...

þetta var Rökkvi btw.

9:35 PM  
Blogger Tryggvi said...

Þetta er mín eigin sköpun já.

10:41 AM  
Anonymous Anonymous said...

You sooo don't have a life!

Hvað gláptirðu á hann lengi áður en þetta kom saman í kollinum á þér?

11:06 AM  

Post a Comment

<< Home